Ásprent skellt í lás
Prentsmiðjunni Ásprent Stíll á Akureyri hefur verið lokað og starfsemin lögð niður. Skiptastjóri tilkynnti starfsfólki þetta á fundi síðdegis í dag. Hjá Ásprent störfuðu 20 manns. Eins og blaðið greindi frá í síðustu viku var Ásprent tekið til gjaldþrotaskipta og fékk starfsfólk ekki greidd út laun núna um mánaðarmótin.
Rekstur félagsins hefur verið þungur síðustu misseri og áhrif COVID-19 faraldursins hafa haft afgerandi neikvæð áhrif. Tilraunir til fjárhagslegrar endurskipulagningar með viðskiptabanka félagsins tókust ekki.
Taka skal fram að Vikublaðið, Dagskráin og Skráin, sem Útgáfufélagið gefur út og prentuð voru í Ásprent, munu koma út áfram og hefur gjaldþrot Ásprents ekki áhrif á útgáfu þessara miðla.