27. nóvember - 4. desember - Tbl 48
Annir á dekkjaverkstæðum
Algeng sjón í nágrenni við dekkjaverkstæði á Akureyri í dag, þ.e. þeim sem taka við viðskiptavinum beint af götunni. Mynd Vikublaðið
Um leið og fyrstu snjókorn haustsins/vetrarins falla færist heldur betur líf í dekkjaverkstæði bæjarins. Lausleg könnum leiddi í ljós að þau verkstæði sem bjóða upp á tímapantanir eru uppseld þessa viku og þau hin sem taka við umferð beint af götunni, þar eru langar biðraðir.
Veðurspáin boðar hlýindi næstu tvo, þrjá daga en svo snýr til norðanáttar snjókomu og kulda þannig að liklega er ekki eftir neinu að bíða.