Aldraðir sendir tímabundið í laus pláss á hjúkrunarheimili í nágrannabyggðum
Öldruðum einstaklingum sem liggja inni á Sjúkrahúsinu á Akureyri og bíða eftir hjúkrunarrými hefur fjölgað undanfarna mánuði, en að meðaltali eru milli 20-25% bráðarýma SAk upptekin af þessum sökum. Rúmanýting á bráðalegudeildum SAk er oft yfir 100% en talið er ásættanlegt að um 5% rýma á sjúkrahúsum séu nýtt af einstaklingum sem bíða eftir úrræði á hjúkrunarheimili.
Mikið álag hefur verið á bráðalegudeildum SAk bæði vegna fjölda sjúklinga og skorts á heilbrigðisstarfsfólki. Stjórnendur SAk hafa í samvinnu við stjórnvöld og stjórnendur Heilbrigðisstofnunar Norðurlands leitað lausna á vandanum en búast má við enn fleiri sjúklingum á SAk í sumar þegar ferðamannastraumurinn eykst og metfjöldi skemmtiferðaskipa leggja að höfn.
Geta til að taka við bráðveikum hefur minnkað
Vegna rýmisvanda hefur geta SAk til að taka við bráðveikum sjúklingum minnkað og hafa stjórnendur, í samráði við stjórnendur HSN og heilbrigðisráðuneytið, brugðið á það ráð að senda aldraða einstaklinga sem bíða eftir hjúkrunarrými tímabundið í laus pláss á hjúkrunarheimili og hjúkrunardeildir í nágrannabyggðir Akureyrar. „Við gerum okkur grein fyrir þeim óþægindum sem þetta veldur, bæði hjá einstaklingum og einnig aðstandendum þeirra, en bendum á að þetta er tímabundin lausn og til þess gerð að hægt sé að sinna þeim bráðveiku á SAk,“ segir Ragnheiður Halldórsdóttir öldrunarlæknir og starfandi framkvæmdastjóri á SAk. Hjúkrunardeildir á Sauðárkróki og Siglufirði hafi hlaupið undir bagga og tekið við fólki frá Akureyri en einnig hafi verið góð samvinna við Grenilund á Grenivík. Einnig hafi sjúklingur farið til Húsavíkur.
Ragnheiður bendir einnig á að bráðadeildir sjúkrahúsa séu ekki góður staður fyrir aldraðan einstakling að bíða á. Við langtímadvöl aldraðra á sjúkrahúsi aukist líkur á sýkingum, óráði, byltum, félagslegri einangrun og fleiri vandamálum með tilheyrandi álagi fyrir hinn aldraða, aðstandendur hans og starfsfólk sjúkrahússins. Hún segir stjórnendur sjúkrahússins vonast til að fundin verði lausn á skorti á hjúkrunarrýmum á Akureyri sem allra fyrst svo betur sé hægt að veita rétta þjónustu á réttum stað.
Nokkrir samverkandi þættir valda því að ástandið er slæmt um þessar mundir. Mygla á tveimur hjúkrunardeildum á Hlíð bæti ekki úr skák, en einnig nefnir hún að öldruðum hafi fjölgað mikið á liðnum árum og þörf fyrir hjúkrunarrými eða önnur úrræði hafi aukist í takt við það. Þá nefnir Ragnheiður að margt aldrað fólk virðist veikara eftir að kórónuveirufaraldurinn er að baki, það hafi komist í gegnum hann, ef til vill með því að einangra sig félagslega og margir upplifi nú síðar að hann hafi tekið sinn toll.