20. nóvember - 27. nóvember - Tbl 47
Akureyringar að verða 20.000 talsins
Samkvæmt tölum frá Þjóðskrá voru Akureyringar 19.989 þann 1 apríl s.l. og því afar líklegt að 20.000 íbúamarkinu verði náð núna á næstu dögum. 1. des. sl. voru íbúar hér 19.898 og hefur þeim þvi fjölgað um 91 á þessu tímabili.
Íbúar Norðurþings voru 1 apríl s.l. alls 3.143 en það er fækkum um 19 manns m.v. íbúafjölda þann 1 des. sl.
Eyjafjarðarsveit er fjölgun um 21 íbúa á þessum sama tíma, í dag búa 1.178 manns þar.
Hörgárbyggð gerir betur en þarf hefur fólki fjölgað um 32 á þessu tímabili. Íbúar þar 1. apríl því 801.
Í Grýtubakkahrepp bjuggu 1 apríl 387 og hefur fjölgað þar um 6 manns frá 1 des. s.l.