Afmælisrit Háskólans á Akureyri
Út er komin bókin, Háskólinn á Akureyri 1987-2012, afmælisrit. Rakin er aðdragandi að stofnun skólans, sem ekki var átakalaus. Þetta er þroskasaga ungrar stofnunar. Hvernig komst hún á legg hvað þarf til að skóli standi undir nafni? Hvernig hefur Háskólinn þróast sem merkileg kennslu- og vísindastofnun og hvað hefur hann lagt af mörkum til fræða og samfélagsins í heild?
Leitað er svara við þessum spurningum, og fleiri til, en það er ekki síst vegna hins unga aldurs Háskólans á Akureyri að saga hans verður gagnmerkt innlegg í menntunarsögu Íslands. Þetta er nútímasaga er varpar skemmtilegu ljósi, og stundum óvæntu, á seinni hluta 20. aldar og byrjun þeirrar 21.
Saga Háskólans á Akureyri er á fjórða hundrað síður, prýdd fjölmörgum ljósmyndum af nemendum og starfsfólki við störf og leik. Ritstjóri er prófessor Bragi Guðmundsson og útgefandi Völuspá útgáfa í samvinnu við Háskólann á Akureyri.