64 brautskrást frá HA í dag
Samtals brautskrást 64 kandídatar frá þremur fræðasviðum Háskólans á Akureyri í dag, mánudag. Stærsta brautskráning frá Háskólanum á Akureyri – Háskólahátíð - fer fram í júní á ári hverju en þess utan stendur stúdentum til boða að brautskrást í febrúar og október.
„Aukninguna má rekja til Covid-19 faraldursins. Á meðan sumir stúdentar ákváðu að gefa sér lengri tíma í ritgerðarvinnuna og seinka þannig brautskráningu voru aðrir sem sem nýttu tímann og tóku aftur upp þráðinn með lokaverkefnin sín og gátu þannig brautskrást frá háskólanum,” segir Bára Sif Sigurjónsdóttir, forstöðumaður Nemendaskrár.
Flestir brautskrást úr heilbrigðisvísindum með viðbótardiplóma eða alls 16.
Listinn eftir deildum/sviðum:
- 1 úr kennarafræði, B.Ed.
- 4 úr menntunarfræði, M.Ed.
- 2 úr menntunarfræði, viðbótardiplóma
- 1 úr menntavísindum, MS
- 4 úr menntavísindum, viðbótardiplóma
- 2 úr kennarafræðum, MT
- 2 úr nútímafræði, BA
- 1 úr sálfræði, BA
- 1 úr lögfræði, ML
- 1 úr félagsvísindum, BA
- 1 úr lögreglufræði fyrir verðandi lögreglumenn, grunndiplóma
- 1 úr lögreglufræði fyrir starfandi lögreglumenn, grunndiplóma
- 2 úr lögreglu- og löggæslufræði, BA
- 1 úr rannsóknartengdu meistaranámi í félagsvísindum, MA
- 14 úr viðskiptafræði, BS
- 1 úr viðskiptafræði, MS
- 1 úr líftækni, BS
- 1 úr sjávarútvegsfræði, BS
- 1 úr auðlindafræði, MS
- 1 úr Haf- og strandveiðastjórnun við Háskólasetur Vestfjarða
- 2 úr hjúkrunarfræði, BS
- 3 úr heilbrigðisvísindinum, MS
- 16 úr heilbrigðisvísindum, viðbótardiplóma
Kandídatar fá prófskírteini sín send á lögheimili sitt á næstu dögum.