Súlur björgunarsveitin byggir vélaskemmu

Stjórn sveitarinnar ásamt fyrrum formönnum tóku fyrstu skólfustunguna.   Myndir  Súlur
Stjórn sveitarinnar ásamt fyrrum formönnum tóku fyrstu skólfustunguna. Myndir Súlur

Mánudaginn 3. júní síðastliðinn var fyrsta skóflustungan tekin af nýrri vélaskemmu sem mun rísa á lóð okkar við Hjalteyrargötu 12.  Vélaskemman verður rúmlega 300 fm með fjórum bilum fyrir tæki sveitarinnar.

Fyrstu skóflustunguna tók stjórn sveitarinnar ásamt fyrri formönnum sveitarinnar. Nesbræður mættu svo á þriðjudeginum og tóku grunninn af skemmunni.

Framundan eru spennandi mánuðir í byggingarframkvæmdum.

Frá þessu er sagt Facebooksíðu  Súlna.

Grunnur klár


Athugasemdir

Nýjast