Sprotasjóður - Fjórir skólar á Norðurlandi eystra hljóta styrk

Sprotasjóður leik- grunn- og framhaldsskóla hefur úthlutað 59,8 m.kr. til 32 skólaþróunar-verkefna f…
Sprotasjóður leik- grunn- og framhaldsskóla hefur úthlutað 59,8 m.kr. til 32 skólaþróunar-verkefna fyrir skólaárið 2024–2025. Mennta- og barnamálaráðherra, Ásmundur Einar Daðason, og formaður stjórnar sjóðsins, og Bragi Þór Svavarsson, afhentu styrkina við hátíðlega athöfn í mennta- og barnamálaráðuneytinu.

 Fjórir skólar á Norðurlandi eystra hluti styrk úr Sprotasjóði leik-, grunn- og framhaldsskóla sem úthlutað styrkjum af fjárlögum ársins 2023 á dögunum Skólarnir sem hlutu styrki nú eru  Þelamerkurskóli, Dalvíkurskóli, Grenivíkurskóli og Norðurþing.

Tveir þeir fyrst nefndu hlutu 3,5 milljónir króna hvor vegna verefnis um teymiskennslu í skólunum. Grenivíkurskóli hlaut 2,7 milljónir króna vegna verkefnis sem ber heitið Frá kveikju til bókar. Norðurþing fékk 2 milljónir króna vegna innleiðingar STEAM í námskrá leikskólans Grænuvalla.

Sprotasjóður styður við þróun og nýjungar í skólastarfi í leik- grunn- og framhaldsskólum í samræmi við stefnu stjórnvalda og aðalnámskrá viðkomandi skólastiga.


Athugasemdir

Nýjast