Arnar Grétarsson tekur við liði KA

Arnar Grétarsson.
Arnar Grétarsson.

KA hefur samið við Arnar Grétarsson um að taka við sem þjálfari liðsins í Pepsi Max-deild karla. Samningurinn við Arnar gildir út keppnistímabilið. Eins og fram kom á heimasíðu félagsins í dag hefur stjórn knattspyrnudeildar komist að samkomulagi við Óla Stefán Flóventsson um starfslok.

Arnar Grétarsson er knattspyrnuáhugamönnum kunnugur. Hann lék lengi vel sem atvinnumaður, bæði í Grikklandi og Belgíu og hann hefur einnig leikið 72 landsleiki fyrir Íslands hönd. Sem þjálfari hefur hann stýrt Breiðablik hér á landi og KSV Roeselare í Belgíu.

Aðrar breytingar verða ekki á þjálfarateyminu en fyrir í því eru þeir Hallgrímur Jónasson, Pétur Kristjánsson, Branislav Radakovic og Halldór Hermann Jónsson. Næsti leikur KA er gegn Gróttu á laugardaginn kl. 16:00 á Greifavelli. Greint er frá þessu á vef KA. 

Nýjast