20. nóvember - 27. nóvember - Tbl 47
Varar við grunnsamlegum mannaferðum
Lögreglan á Norðurlandi eystra varar við grunsamlegum mannaferðum í umdæminu. Á Facebook síðu lögreglunnar segir að um helgina hafi nokkrar tilkynningar um grunsamlegar mannaferðir borist í umdæminu, í og við íbúðarhús sem og sveitabæi.
„Minnir þetta talsvert á stöðuna sem upp kom hér fyrr á árinu þar sem óprúttnir aðilar fóru víða um í ýmis húskynni í þeim erindagjörðum að ná sér í verðmæti og voru flestir þeirra af erlendu bergi brotnir. Tvær tilkynningar hafa borist þar sem brotist hefur verið inn í íbúðarhús og einhverju stolið,“ segir í færsluna.
Þá hvetur lögreglan fólk til að vera á varðbergi og láta vita um grunsamlegar mannaferðir og ef um ökutæki er að ræða að skrá niður hjá sér skráningarnúmer þeirra.