Varað við mikilli svifryksmengun á Akureyri

Mynd/Akureyri.is
Mynd/Akureyri.is

Á vef Akureyrarbæjar er varað við mikilli svifryksmengu. Þar sem veðurhorfur í dag og næstu daga eru þannig að götur eru þurrar, hægur vindur og kalt í veðri má búast við að svifryksmengun á Akureyri fari yfir heilsuverndarmörk.

Þeir sem eru viðkvæmir fyrir í öndunarfærum og börn ættu að forðast útivist í nágrenni stórra umferðagatna. Á vef bæjarins segir að best sé að skoða stöðu mála á vef Umhverfisstofnunnar og velja Akureyri sem mælistöð. Til að fá upp gildi fyrir stöðu mála hér er ýtt á hnappinn fyrir Akureyri.

Nýjast