Sundferðin hækkar í þúsund krónur

Akureyrarbær hefur samþykkt gjaldskrár fyrir árið 2019. Stök sundferð í sundlaugar Akureyrar mun hækka um 50 krónur eftir áramót og mun sundferðin kosta 1.000 kr. Þetta er hækkun um 5,3% á milli ára. Stök sundferð í laugar Akureyrarbæjar hefur hækkað um 400 hundruð krónur á fjórum árum en árið 2015 kostaði sundferðin 600 kr. Verð fyrir börn og eldri borgara stendur í stað.

Nýjast