Söfnun fyrir Garðar Smára: Missti aleiguna í brunanum í Norðurgötu
Sett hefur verið af stað söfnun fyrir Garðar Smára Helgason sem missti aleigu sína í bruna í Norðurgötu á Akureyri þann 17. nóvember síðastliðinn. Garðar Smári er 22 ára og er á örorku vegna einhverfurófs. Foreldrar Garðars standa fyrir söfnuninni en á Facebooksíðu þeirra kemur fram að hann keypti íbúðina í janúar sl. og var hún nýuppgerð. Var þetta hans fyrsta íbúð.
„Því miður var hann ekki með innbústryggingu vegna misskilnings milli hans og tryggingafélagsins. Og þar sem íbúðin var mjög gömul að þá dugar brunabótamat hússins engan veginn fyrir endurbyggingu þess . Hún dugar heldur ekki fyrir áhvílandi láni á íbúðinni.
Þetta er skelfileg staða sem við óskum engum að þurfa að lenda í. Til að létta undir með honum hef ég stofnað styrktarreikning 0302-13-300033 og kt 130969-3649. Yndislega fólk ef þið hafið einhver tök á að leggja honum lið þá yrði ég einstaklega þakklátur,“ skrifar Helgi Garðarsson faðir Garðars Smára.