Dagskráin 29. janúar - 5. febrúar - Tbl 4
Sigurður Unnar Íslandsmeistari í skeet
Húsvíkingurinn Sigurður Unnar Hauksson varð um helgina Íslandsmeistari Karla í leirdúfuskotfimi eða skeet sem fram fór á Iðavöllum í Hafnafirði.
Hann skaut sig inn í úrslit með 114 leirdúfur af 125. Í úrslitarimmunni sem hann háði við Örn Valdimarsson en sá er jafnframt þjálfari Sigurðar Unnars hitti hann 15 leirdúfur af 16 en Örn var með 12. Þeir keppa báðir undir undir merkjum Skotfélags Reykjavíkur.
Þetta var fyrsti Íslandsmeistaratitill Sigurðar Unnars í karlaflokki en hann er aðeins 21. árs gamall og á því framtíðina fyrir sér í greininni.
„Ég er búinn að vera í þessu frá því að ég var 15 ára,“ sagði Sigurður Unnar í stuttu spjalli við dagskrána.is. Hann varð Íslandsmeistari unglinga fimm ár í röð en á síðasta ári keppti hann í fyrsta sinn um Íslandsmeistaratitilinn í fullorðinsflokki þrátt fyrir að vera þá enn gjaldgengur til keppni í unglingaflokki. Hann þótti standa sig með prýði á sínu fyrsta móti og endaði í 4. sæti.
Sigurður Unnar er þegar farinn að keppa fyrir Íslands hönd á erlendum vettvangi. „Við erum þrír í landsliðinu eins og er. Ég er líka með þjálfara í Bretlandi og hef farið í eina æfingaferð þangað svo er ég búinn að keppa á Evrópumeistaramóti og einu opnu móti í Danmörku nú í ár,“ segir hann.
Á síðasta ári var Sigurður Unnar eini Íslendingurinn á svokölluðum Evrópulista og var nr. 65 á honum. Hann setur markið hátt og ætlar sér stóra hluti í framtíðinni.
„Ég stefni á Ólympíuleikana í Tókíó árið 2020,“ segir hann en það er ljóst að samkeppnin um farseðlana er hörð: „Það eru 32 pláss alls og 12 í Evrópu sem fá að fara,“ segir Sigurður Unnar Hauksson nýkrýndur Íslandsmeistari í haglabyssu greininni skeet.
-epe