27. nóvember - 4. desember - Tbl 48
Niceair til Alicante og Dusseldorf í vor
Í vor hefst flug til Alicante og Dusseldorf frá Akureyrarflugvelli með Niceair. Flogið verður vikulega á báða staði, en flug til Alicante hefst 11. apríl en 6. maí til Dusseldorf.
“Við erum að bjóða nýjan áfangastað í sólina frá Akureyri, en við munum gera hlé á flugi til Tenerife á sama tíma. Alicante er mjög góð gátt inn í suður Spán þar sem Torrevieja, Benidorm og Valencia eru öll skammt frá. Dusseldorf býður síðan í senn frábæra tengimöguleika um allan heim og stutt er til Luxemborgar, Belgíu og Hollands, auk þess sem Köln og Dusseldorf eru fallegar miðaldaborgir og vinsælir áfangastaðir. Þá liggur Dusseldorf í hjarta Rheinland-Westfalen, sem er stórt upptökusvæði fyrir Íslandsfara frá Þýskalandi” segir Helgi Eysteinsson, sölu – og markaðsstjóri Niceair.
Niceair hóf flug til Danmerkur og Spánar frá Akureyri í byrjun júní. Sætanýting hefur verið um 73% frá upphafi og reksturinn gengið umfram væntingar. Eigendur félagsins eru mörg stærri fyrirtækja á Norðurlandi, þ.m.t Höldur, Kaldbakur, KEA, Rafeyri, Frost ofl. Framkvæmdastjóri er Þorvaldur Lúðvík Sigurjónsson. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Niceair.