Jólatrén fjarlægð dagana 7.-11. janúar

Starfsmenn Umhverfismiðstöðvar á Akureyri munu fjarlægja jólatré sem sett hafa verið við lóðarmörk dagana 7.-11. janúar. Einnig verða gámar staðsettir við Kaupang, Hagkaup, Hrísalund, Bónus Naustahverfi, Bónus Langholti og verslunarmiðstöðina við Sunnuhlíð þar sem hægt verður að losa sig við trén, er fram kemur á vef Akureyrarbæjar.

Nýjast