Íslensk dögurlög og Agent Fresco á Græna hattinum

Þuríður Sigurðardóttir heldur tónleika ásamt hljómsveit á Græna hattinum um helgina.
Þuríður Sigurðardóttir heldur tónleika ásamt hljómsveit á Græna hattinum um helgina.

Í kvöld, fimmtudaginn 24. október verða tónleikar með söngkonunni og lagasmiðnum Jónínu Aradóttur á Græna hattinum. Jónína býr í Noregi þar sem hún vinnur að tónlist sinni og í október ferðast hún um Ísland og heldur tónleika á nokkrum vel völdum stöðum.

„Tónleikarnir verða lágstemmdir þar sem Jónína deilir með okkur nokkrum vel völdum lögum úr eigin safni í bland við falleg íslensk dægurlög,“ segir um tónleikana. Gestur á tónleikunum er Hrafnhildur Ýr, söngkona og lagasmiður. Hún mun flytja sitt eigið efni auk þess að vera með Jónínu í bakröddum.


Á föstudagskvöldinu 25. október verða tónleikar með Þuríði Sigurðardóttur og hennar hljómsveit. Þuríður sló í gegn 16 ára þegar hún söng inn á plötu með Lúdó og Stefáni. Stuttu seinna var henni boðið í Hljómsveit Magnúsar Ingimarssonar, sem var fastráðinn á veitingastaðnum Röðli. Þar söng hún sex daga vikunnar ásamt Vilhjálmi Vilhjálmssyni og seinna með Pálma Gunnarssyni. Hljómsveitin gerði nokkra útvarps- og sjónvarpsþætti og Þuríður varð ein þekktasta söngkona landsins. Hún söng inn á sólóplötur, gerði eina plötu með föður sínum Sigurði Ólafssyni, tvær plötur með Pálma Gunnarssyni og eina með Ragnari Bjarnasyni. Þuríður söng með Hljómsveit Jóns Páls Bjarnsonar, stofnaði hljómsveitina Islandia, söng með Hljómsveit Ragnars Bjarnasonar og var í Sumargleðihópnum. Hún hefur starfað með fleiri hljómsveitum og sungið inn á nokkrar plötur til viðbótar.

„Samt ætlaði hún aldrei að verða söngkona - þetta gerðist einfaldlega fyrir hreina tilviljun,“ segir um tónleikana. Þegar Þuríður varð sjötug í ársbyrjun 2019 og 50 ár voru liðin frá því að fyrsta sólóplata hennar með lögunum Ég á mig sjálf og Ég ann þér enn kom út fagnaði hún tímamótunum með tónleikum í Bæjarbíói. Miðarnir seldust upp á skömmum tíma og eftirspurnin var slík að hún efndi til aukatónleika. „Mjög góður rómur var gerður að tónleikunum enda er Þuríður í fantagóðu formi og syngur betur en nokkru sinni fyrr. Vegna fjölda áskorana hefur Þuríður ákveðið að halda fleiri tónleika og koma fram í Salnum í Kópavogi og á Græna hattinum á Akureyri, með sama mannskap og í Bæjarbíói,“ segir í tilkynningu. Hljómsveitina skipa þeir Pálmi Sigurhjartarson, Benedikt Brynleifsson, Gunnar Hrafnsson, Grímur Sigurðsson og Unnur Birna Bassadóttir. Gestasöngvari er Sigurður Helgi Pálmason. Tónleikarnir hefjast kl. 22.00.

Agent Fresco kemur fram á Græna hattinum laugardaginn 26. október. „Strákarnir munu spila öll sín vinsælustu lög í bland við nýtt og spennandi efni af óútgefinni plötu sem sveitin hefur setið á. Verið öll velkomin á glæsilega tónleika með einu flottasta rokkbandi landsins,“ segir um tónleika Agent Fresco. Tónleikarnir hefjast kl. 22.00.

Nýjast