13.nóvember - 20.nóvember - Tbl 46
Ingibjörg Isaksen leiðir vinnu í málefnum aldraðra
Ásmundur Einar Daðason, félags- og barnamálaráðherra, skipaði fyrr í mánuðinum starfshóp sem ætlað er að fjalla um málefni aldraðra á breiðum grundvelli og var fyrsti fundur hópsins haldinn í dag. Formaður hópsins er Ingibjörg Ólöf Isaksen, bæjarfulltrúi á Akureyri og framkvæmdastjóri Læknastofa Akureyrar.
Aðrir meðlimir eru Arnar Þór Sævarsson, tilnefndur af félagsmálaráðuneytinu, Guðlaug Einarsdóttir, tilnefnd af heilbrigðisráðuneytinu, Þórunn Sveinbjörnsdóttir, tilnefnd af Landssambandi eldri borgara, Haukur Halldórsson, tilnefndur af Landssambandi eldri borgara, Þorbjörn Guðmundsson, tilnefndur af Landssambandi eldri borgara, Bergþóra Benediktsdóttir, tilnefnd af forsætisráðuneytinu og Steingrímur Ari Arason, tilnefndur af fjármálaráðuneytinu.
Áður hafði Ásmundur Einar skipað starfshóp um kjör aldraðra og skilaði hann skýrslu í desember 2018 þar sem fram komu tillögur um hvernig bæta megi kjör þeirra aldraðra sem búa við lökustu kjörin í þjóðfélaginu. Frumvarp þess efnis verður lagt fram í vetur. Nýja hópnum er ætlað að skoða málefni aldraðra í víðara samhengi.
„Mikilvægt er að bregðast við yfirvofandi fjölgun í elstu aldurshópum og breyttri aldurssamsetningu þjóðarinnar og eru áskoranirnar af ýmsum toga. Gera þarf öldruðum kleift að auka ráðstöfunartekjur sínar með aukinni atvinnuþátttöku þegar það á við en á sama tíma þarf að tryggja fullnægjandi mönnun og þjónustu innan öldrunargeirans fyrir þá sem á þurfa að halda,“ segir Ásmundur Einar.