Húsaleiguverð lækkar á Húsavík

Húsavík. Mynd /epe
Húsavík. Mynd /epe

Verkefnisstjórn Gaums sækir árlega upplýsingar til Þjóðskrár um þróun leiguverðs á Húsavík. Upplýsingar um leiguverð byggja á þinglýstum leigusamningum hvert ár. 

Þær forsendur sem eru notaðar þegar gögn eru sótt á Þjóðskrá eru herbergjafjöldi á bilinu 2-6 herbergi, stærð á bilinu 40-250 mog byggingarár frá 1920. 

Ef þróun leiguverðs er skoðuð frá því að vöktun hófst á vettvangi Gaums má sjá að fermetraverð hefur hækkað um 72% á Húsavík. Við upphaf vöktunar var fermetraverðið 765 krónur en var á árinu 2019; 1313 krónur. Hæst var fermetraverðið árið 2018 eða 1553 krónur og hefur verðið því lækkað um 240 krónur á milli ára.

Upplýsingar um leiguverð utan Húsavíkur eru ekki birtar þar sem afar fáir þinglýstir leigusamningar eru utan Húsavíkur á vöktunarsvæðinu.

Húsaleiga

Nýjast