Heimsóknarbanni aflétt á Öldrunarheimilum Akureyrar
Heimsóknarbanni inn á heimilin hjá Öldrunarheimilum Akureyrar (ÖA) var aflétt sl. laugardag og tekið upp fyrra fyrirkomulag með takmarkaðar heimsóknir. Á vef Akureyrarbæjar segir að einn aðstandandi megi koma og heimsókn sé leyfileg einu sinni á dag.
Heimilin verða áfram læst og þurfa heimsóknargestir því að gera vart við sig þegar þeir koma. Gestir skulu nota maska, spritta, gæta fjarlægðarmarka, koma og fara styttstu leið.