Fyrsta flugvél Edelweiss lenti í miðnætursól á Akureyri

Mynd: Isavia/Þórhallur Jónsson.
Mynd: Isavia/Þórhallur Jónsson.

Föstudaginn 7. júlí lenti fyrsta flugvélin frá svissneska flugfélaginu Edelweiss á Akureyri. Vélin kom frá Zurich í Sviss, en flugfélagið býður upp á sjö áætlunarflug í sumar til Akureyrar. Greint er frá þessu á vef Markaðsstofu Norðurlands.

Þar segir að Edelweiss hafi lengi boðið upp á flug til Keflavíkur og nú hefur Akureyri og Norðurland allt bæst við sem áfangastaður í þeirra leiðarkerfi. Stefnt sé að því að lengja flugtímabilið næsta sumar, en þegar tilkynnt var um flugið sögðust fulltrúar Edelweiss hafa mikla trú á Íslandi sem áfangastað og að tækifærin til að koma með fleiri farþegar til landsins um Akureyri væru frábær. Sérstaklega ætti það við um farþega sem vilja heimsækja landið í annað sinn og ferðast víðar.

Isavia tók vel á móti farþegum og bauð upp á veitingar frá Flugkaffi, íslenskar pönnukökur og kaffi. Áður hafði slökkvilið flugvallarins sprautað vatni yfir vélina með hátíðarbrag, eins og tíðkast þegar vélar í nýju áætlunarflugi lenda í fyrsta sinn á vellinum. 

„Eitt af markmiðum Sóknaráætlunar Norðurlands eystra er að koma á reglubundnu millilandaflugi til Norðurlands eystra og er þetta flug Edelweiss svo sannarlega flott viðbót inn í það markmið,“ segir um fréttina á vef SSNE. 

Nýjast