Frístundastyrkur hækkar um 5.000 krónur
Við gerð fjárhagsáætlunar Akureyrar fyrir árið 2019 samþykktu frístundaráð og bæjarstjórn að hækka frístundastyrk til niðurgreiðslu á æfinga- og þátttökugjöldum barna og unglinga á Akureyri. Hefur nú verið ákveðið að hækka styrkinn úr 30.000 kr. í 35.000 kr. frá og með 1. janúar 2019. Frístundastyrkurinn hefur nú hækkað um 75% á tveimur árum, er segir á vef Akureyrarbæjar.
Frá árinu 2006 hefur Akureyrarbær veitt styrk til allra barna og unglinga á Akureyri til niðurgreiðslu þátttökugjalda hjá íþrótta-, tómstunda- og æskulýðsfélögum á Akureyri. Styrkurinn tekur gildi árið sem barnið verður 6 ára og fellur úr gildi árið sem unglingurinn verður 18 ára. Árið 2019 gildir styrkurinn fyrir börn fædd árið 2002 til og með 2013.
Frístundastyrkurinn gildir frá 1. janúar til 31. desember ár hvert. Hægt er að nálgast upplýsingar um nýtingu frístundarstyrksins á vef Akureyrarbæjar.