Fengu umhverfisverðlaun Eyjafjarðarsveitar

Verðlaunahafar með viðurkenningarnar. Mynd/Eyjafjarðarsveit.
Verðlaunahafar með viðurkenningarnar. Mynd/Eyjafjarðarsveit.

Umhverfisverðlaun Eyjafjarðarsveitar voru veitt af umhverfisnefnd sveitarfélagsins á dögunum. Á vef Eyjafjarðarsveitar segir ákveðið hafi verið að veita tveimur aðilum verðlaunin í ár, annarsvegar fyrir Bújörð og atvinnustarfsemi og hinsvegar fyrir íbúðarhús og nærumhverfi. Til að leggja mat á það hverjir ættu að fá umhverfisverðlaun 2019 fór umhverfisnefnd í vettvangsferð um sveitarfélagið og gerði sér ferð að hverju húsi. Eftirfarandi aðilar hlutu umhverfisverðlaun Eyjafjarðarsveitar 2019:

Bújörð/atvinnustarfsemi: Litli Garður, Hrossarækt og tamningastöð - Herdís Ármannsdóttir og Stefán Birgir Stefánsson. 

Falleg ásýnd er að bænum þar sem tún og bæjarhús eru afmörkuð með trjágóðri. Almenn góð umgengni er á svæðini, nýlega máluð útihús og íbúðarhús í stíl.

Íbúðarhús og nærumhverfi: Festaklettur - Nína Þórðardóttir og Tómas Ingi Olrich.

Reisulegt íbúðarhús með fallegri verönd og vel hirtum beðum í kring. Húsið og nærumhverfi þess er í skjóli fjölbreytts trjágróðurs, heimreið afar smekkleg og aðkoma að húsinu til fyrirmyndar.

„Sveitarfélagið óskar þeim til hamingju með verðskuldaðar viðurkenningar á umhverfi sínu og þakkar þeim fyrir að leggja mark sitt á að halda sveitarfélaginu snyrtilegu,“ segir á vef Eyjafjarðarsveitar.

Nýjast