Dagskráin 18.desember - 8.janúar 2025
Ásdís Guðmundsdóttir gengur til liðs við sænska handboltaliðið Skara HF
Ásdís Guðmundsdóttir leikmaður með KA/Þór i handboltanum hefur gengið til liðs við sænska liðið Skara HF sem er sama félag og Aldís Ásta Heimisdóttir gekk til liðs við fyrr í sumar.
Það er óhætt að segja að lið KA/Þór hefur orðið fyrir mikili blóðtöku í sumar, burðarársar hafa yfirgefið liðið en á sama tíma er það vitni um gott starf félagsins að leikmenn þess veki áhuga félaga erlendis og í framhaldi af þvi gangi til liðs við félög ytra.
Það verður gaman að fylgjast með þeim stöllum Ásdísi og Aldísi með liði Skara á komandi keppnistímabili.