Áramótabrenna og flugeldasýning í kvöld

Mynd: Berglind Mari Valdemarsdóttir
Mynd: Berglind Mari Valdemarsdóttir

Árleg áramótabrenna á Akureyri verður á sínum stað við Réttarhvamm í kvöld, Gamlárskvöld, auk þess sem boðið verður upp á glæsilega flugeldasýningu. Kveikt verður í brennunni kl. 20.30 en flugeldasýningin hefst kl. 21.00.

Það er björgunarsveitin Súlur sem stendur fyrir viðburðinum með styrk frá Norðurorku og Íslandsbanka.

Fólk er hvatt til að mæta með stjörnublys og hlífðargleraugu en ekki hafa meðferðis eigin flugelda. Bílastæði verða í nágrenni við brennuna en þeir sem búa nálægt svæðinu eru hvattir til að koma gangandi til að minnka umferð um svæðið.

Einnig verða áramótabrennur í Hrísey og Grímsey. Í Hrísey hefst brennan kl. 17.00 og í Grímsey kl. 20.00

 

Nýjast