Aflið fær 18 milljónir króna frá ríkinu

Hjalti Ómar Ágústsson verkefnastjóri Aflsins, Ásmundur Einar Daðason félags- og jafnréttismálaráðher…
Hjalti Ómar Ágústsson verkefnastjóri Aflsins, Ásmundur Einar Daðason félags- og jafnréttismálaráðherra og Elín Ragnarsdóttir formaður Aflsins við undirritun samningsins.

Aflið á Akureyri, samtök gegn kynferðis- og heimilisofbeldi, fær 18 milljóna króna framlag til að standa straum af starfsemi sinni sem felst í þjónustu við þolendur kynferðis- og heimilisofbeldi, samkvæmt nýjum samningi sem Ásmundur Einar Daðason, félags- og jafnréttismálaráðherra, hefur gert við samtökin. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Velferðarráðuneytinu.

Samningurinn er til eins árs. Þjónusta Aflsins felst í faglegri ráðgjöf og stuðningi við þolendur, forvarnarfræðslu og handleiðslu. „Aflið er svo sannarlega afl til góðs í samfélaginu. Sjálfboðaliðar og fagfólk sinna störfum sínum af miklum metnaði. Það er því ástæða til að þakka fjárlaganefnd Alþingis fyrir að hafa greitt götu Aflsins með ákvörðun um 18 milljóna króna framlag á næsta ári til starfseminnar. Samningurinn byggist á því,“ segir Ásmundur Einar.

Aflið var stofnað árið 2002 í framhaldi af tilraunastarfsemi Stígamóta og Jafnréttisstofu. Undanfarin ár hefur Aflið verið með þjónustusamning við Akureyrarbæ og átt í samvinnu við bæjaryfirvöld sem á móti veitt hafa félaginu afnot af húsnæði fyrir starfsemi sína í Aðalstræti 14. Samstarfið felst  meðal annars í viðveru og sýnileika sjálfboðaliða á vegum Aflsins á fjölmennum viðburðum og einnig á tjaldstæðum og víðar þegar margmennt er í bænum um helgar. Auk þess veita ráðgjafar Aflsins fræðslu í grunnskólum bæjarins samkvæmt samkomulagi.

Nýjast