19.04
Egill Páll Egilsson
ökum er nú lokið á myndbandi við lagið Husavik – My Home Town úr myndinni Eurovision Song Contest: The Story of Fire Saga sem tilnefnt til Óskarsverðlauna. Atriðið var tekið upp á Húsavíkurhöfn. Myndbandið verður flutt á Óskarsverðlaunahátíðinni sem fram fer í Hollywood 26. apríl og verður sjónvarpað um allan heim.
Lesa meira
18.04
Steindór Ragnarsson er framkvæmdastjóri Golfklúbbs Akureyrar (GA) en hann hefur starfað á vellinum um árabil. Hann byrjaði fyrst að vinna á vellinum árið 1998 og því öllum hnútum kunnur á vellinum. Steindór er menntaður í golfvallafræðum frá Elmwood College í Skotlandi og er formaður Samtaka íþrótta- og golfvallarstarfsmanna á Íslandi. „Ég byrjaði í unglingavinnunni hjá bænum hérna á vellinum og fékk í framhaldi vinnu hjá GA. Fyrstu árin með skóla var þetta sumarvinna en árið 2004 varð ég vallarstjóri og var í því starfi í 15 ár áður en ég fékk stöðu framkvæmdastjóra árið 2017,“ segir Steindór. Það styttist óðum í að golfsumarið hefjist en Klappir, æfingasvæðið á Jaðarsvellinum hjá Golfklúbbi Akureyrar, opnaði í lok mars. Starfsmenn hafa unnið hörðum höndum í vetur að létta á snjó og tryggja það að snjór og klaki fari af flötunum eins fljótt og mögulegt er og því kemur grasið nokkur vel undan vetri. Flatirnar eru í góðu ásigkomulagi og segir Steindór full ástæða fyrir golfara að til að láta sig hlakka til sumarsins. Þá fer sjálft Íslandsmótið í golfi fram á Akureyri og er undirbúningur hafin fyrir þetta stærsta mót sumarins. Steindór er Norðlendingur vikunnar og situr hér fyrir svörum.
Lesa meira
17.04
Egill Páll Egilsson
Undirbúningur fyrir endurgangsetningu kísilvers PCC á Bakka við Húsavík er nú á lokametrunum og stefnt er að því að hefja uppkeyrslu eins ofnsins á mánudagsmorgun. Þetta kemur fram í tilkynningu sem PCC sendi frá sér fyrir stundu.
Lesa meira
17.04
Egill Páll Egilsson
Húsavík er á ný orðinn kvikmyndabær og fór að taka á sig mynd sem slíkur nú í morgunsárið. Eins og Vikublaðið greindi frá í gær verður söngatriði í tengslum við Óskarstilnefningu lagsins Husavik – My Home Town úr myndinni Eurovision Song Contest: The Story of Fire Saga, tekið upp á höfninni á Húsavík í dag og kvöld. Atriðið verður síðan flutt á Óskarsverðlaunaafhendingunni sem fram fer aðfararnótt 26. apríl að íslenskum tíma; í Hollywood og sjónvarpað um allan heim.
Lesa meira
16.04
Egill Páll Egilsson
Kvikmyndafyrirtækið True North er mætt til Húsavíkur til að taka upp myndband af flutningi Molly Sandén á laginu Husavik – My Home Town úr kvikmyndinni Eurovision Song
Contest: The Story of Fire Saga sem tilnefnt er til Óskarsverðlauna
Lesa meira
16.04
Egill Páll Egilsson
Um hádegisbil í dag mættu vaskir menn á vegum þjónustumiðstöðvar Norðurþings með málningu og rúllur
Lesa meira
16.04
Egill Páll Egilsson
Egill Bjarnason blaðamaður sem er búsettur á Húsavík gefur út sína fyrstu bók í maí, How Iceland Changed the World (is. Hvernig Ísland breytti heiminum). Hann hefur skrifað fyrir Associated Press, The New York Times, National Geographic og fleiri erlenda miðla.
Lesa meira