13.nóvember - 20.nóvember - Tbl 46
Vorboðinn kominn í Grímsey
Vorið er farið að láta á sér kræla norður við heimskautsbaug en sést hefur til lunda í Grímsey. Svartfuglinn er nú þegar sestur upp í björgunum til að tryggja sér hreiðurstæði og lundinn kominn að eyjunni. Svafar Gylfason, íbúi í Grímsey, sem er við grásleppuveiðar þessa dagana, sá til fyrstu lundana um helgina og segir að þeir séu um viku fyrr á ferðinni en áður var. Svavar hefur skráð komu þeirra undanfarin 19 ár.
Búast má við að lundinn setjist upp í eyjunni um eða fyrir miðjan mánuðinn. Lundinn byrjar á því að finna holuna sína, tekur til við að fjarlægja rusl og laga holuna og notar þá gogginn til að grafa og fæturnar til að moka. Talið er að það sé karlfuglinn sem mæti fyrst og sjái um tiltektina og að kvenfuglinn komi u.þ.b. viku síðar, segir á vef Akureyrarbæjar.