Vinna við flugstefnu veldur vonbrigðum

Bæjarráð Akureyrar gagnrýnir harðlega að enginn utan höfuðborgarsvæðisins sitji í starfshópi um stef…
Bæjarráð Akureyrar gagnrýnir harðlega að enginn utan höfuðborgarsvæðisins sitji í starfshópi um stefnu stjórnvalda í flugmálum,samfélags- og byggðasjónarmið éu ekki höfð að leiðarljósi Mynd á vefsíðu Akureyrarbæjar

Bæjarráð Akureyrar gagnrýnir harðlega að enginn utan höfuðborgarsvæðisins sitji í starfshópi um stefnu stjórnvalda í flugmálum. Í þessari vinnu eru samfélags- og byggðasjónarmið ekki höfð að leiðarljósi, að mati bæjarráðs.

Í september í fyrra skipaði samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra verkefnisstjórn til að móta flugstefnu fyrir Ísland, en slík stefna hefur ekki verið mótuð áður með heildstæðum hætti. Starfshópurinn skilaði af sér drögum að grænbók sem voru birt í samráðsgátt stjórnvalda í lok júlí. Almenningi og hagsmunaaðilum var boðið að gera athugasemdir við skýrsluna, en umsagnafrestur rann út í gær, 16. ágúst.

Enginn frá sveitarfélögum í starfshópnum

Bæjarráð  fjallaði um málið á fundi sínum á fimmtudag og mótmælti þeim skamma fresti sem er gefinn, yfir sumarmánuði, til að gera athugasemdir.
Þá gerir bæjarráð alvarlegar athugasemdir við skipan starfshópsins. „Svo virðist sem enginn utan höfuðborgarsvæðisins sitji í starfshópnum. Auk þess sitja engir fulltrúar sveitarfélaga í starfshópnum en bæjarráð telur eðlilegt að Samband íslenskra sveitarfélaga ætti fulltrúa í starfshópnum enda um mikið hagsmunamál fjölmargra sveitarfélaga að ræða.

Bæjarráð telur samfélags- og byggðasjónarmið ekki höfð að leiðarljósi við vinnuna og lýsir yfir vonbrigðum með að þvert á stjórnarsáttmála ríkisstjórnarinnar virðist ekki vera vilji til að opna fleiri gáttir inn í landið og lítil ástæða talin til að flokka aðra flugvelli en Keflavíkurflugvöll sem millilandaflugvöll,“ segir í bókun bæjarráðs.

Bæjarstjóra hefur verið falið að skila inn umsögn vegna málsins að því er fram kemur í frétt á vefsíðu Akureyrarbæjar.

 

Nýjast