Vilja auka markaðssetningu Hríseyjar

Hrísey.
Hrísey.

Rúmlega helmingur landsmanna eða 56% hefur heimsótt Hrísey um ævina og 17% á síðustu fimm árum samkvæmt niðurstöðum nýrrar könnunar sem Gallup gerði fyrir Akureyrarstofu og greint er frá á vef Akureyrarbæjar. Það sem helst dregur fólk út í Hrísey er náttúran og gönguleiðirnar (24%), hópaferðir, til dæmis með vinnufélögum (22%), kyrrðin (18%) og heimsókn til ættingja (16%).

Þá voru aðrar ástæður nefndar eins og fuglalífið og ferðalög. Helstu ástæður þess að fólk hefur aldrei komið til Hríseyjar nefna langflestir eða 45% að það hafi ekki áhuga eða enga sérstaka ástæðu til að fara. Um 25% sögðust ekki hafa átt leið hjá eða ferðast um á Norðurlandi og rúm 21% sögðust ekki þekkja staðinn.

„Þetta bendir til þess að full ástæða sé til að auka markaðssetningu Hríseyjar sem gefi um leið gott færi á að efla ferðaþjónstu þar og styrkja búsetu í eyjunni,“ segir á vef bæjarins. Bent er á að mjög fáir nefni að það taki of langan tíma að sigla út í Hrísey eða kosti of mikið, enda taki sjóferðin rétt um 15 mínútur og kostar aðeins 1.500 kr. báðar leiðir. Könnunin er hluti af markaðsátaki Akureyrarstofu sem hefur það að markmiði að auka áhuga Íslendinga á að heimsækja Hrísey. Markaðsátakið nýtur stuðnings frá Uppbyggingarsjóði Norðurlands eystra.

Um netkönnun var að ræða og var úrtakið 1.691 manns af öllu landinu, 18 ára og eldri. Fjöldi svarenda var 836 eða 49,4% þátttökuhlutfall.

Nýjast