13.nóvember - 20.nóvember - Tbl 46
Unnið að því að ryðja og hálkuverja götur og stíga
Nokkrir vinnuflokkar á vegum Akureyrarbæjar og verktaka vinna nú skipulega að því að hreinsa götur og hálkuverja stíga, er fram kemur á vef Akureyrarbæjar. Miklar hitabreytingar hafa orðið síðasta sólarhringinn, snúist í hlýindi og rigningu sem hefur í för með sér asahláku. Þónokkur snjór hafði þjappast á götur Akureyrarbæjar í frostinu sem nú hefur breyst í þungt krap. Fyrir vikið voru margar götur illfærar í morgun.
Á vef bæjarins segir að mikil áhersla sé lögð á að hreinsa bæinn og gera hann vel færan eins fljótt og auðið er. Heflar hafa verið á ferðinni síðan snemma í morgun og er búið að ryðja strætóleiðir og helstu aðalgötur. Nú er unnið að því að hreinsa í fjölbýlishúsagötum og eru snjómoksturstæki í notkun víða um bæinn.
Bæjarstarfsmenn eru einnig á ferðinni við að brjóta frá niðurföllum og hleypa vatninu niður. Bæjarbúaar eru hvattir til að losa frá niðurföllum við heimili, til dæmis á bílastæðum.
Þessu ástandi fylgir líka flughálka og eru bæjarbúar beðnir um að fara varlega. Fimm sandburðarvélar eru í notkun og er í forgangi að sandbera stíga og gangstéttir sem allra fyrst.