13.nóvember - 20.nóvember - Tbl 46
Undirbúningur vegna Hólasandslínu í fullum gangi
Undirbúningur vegna Hólasandslínu 3, tengingarinnar á milli Akureyrar og Hólasands, er í fullum gangi. Landsnet greinir frá því að nú sé verið að vinna að lagningu ídráttarröra samhliða framkvæmdum Akureyrarbæjar við byggingu göngu-/reiðbrúar yfir vesturkvísl Eyjafjarðarár.
Byggður hefur verið varnargarður með ræsum yfir árkvíslina, og árbakkar fergðir. Framkvæmdir við byggingu brúarinnar hefjast á næstu vikum og er stefnt að því að framkvæmdum ljúki um mánaðamót apríl/maí.