Um 80% barna nýttu sér frístundastyrkinn
Frístundastyrkur Akureyrarbæjar var í fyrra notaður til niðurgreiðslu þátttökugjalda í íþrótta- og tómstundastarfi um 80% barna og unglinga á aldrinum 6-17 ára. Nýting á frístundastyrknum hefur aldrei verið eins mikil. Fram kemur á vef Akureyrarbæjar að 2.615 börn hafi notið góðs af frístundastyrknum með einum eða öðrum hætti árið 2019 og var notuð um 95% af upphæðinni sem stóð til boða. Það jafngildir styrk upp á 33.082 krónur að meðaltali á hvern iðkanda.
Til samanburðar var meðaltals styrkupphæð 28.857 krónur árið 2018. Akureyrarbær varði í heild tæplega 87 milljónum króna í frístundastyrki í fyrra. Kynjahlutfallið milli skráninga var hnífjafnt, 50% drengir og 50% stúlkur. Flestar skráningar voru hjá Íþróttafélaginu Þór (21%) og Knattspyrnufélagi Akureyrar (17%). Í fyrra voru hlutfallslega flestar skráningar meðal barna sem eru fædd árin 2010 og 2012.
Áberandi fæstar skráningar voru hjá elsta árganginum, 2002.Frístundastyrkur ársins 2020 nemur 40.000 krónum á hvern iðkanda, segir í frétt á vef Akureyrarbæjar.