Tugmilljóna tap á rekstri Hlíðarfjalls
Skíðasvæðið í Hlíðarfjalli varð af helmingi tekna vetursins vegna kórónuveirunnar. Skíðasvæði landsins lokuðu 20. mars vegna COVID-19, æfingar og mótahald var bannað en gönguskíðabrautir voru áfram opnar. Þetta kemur fram á vef Rúv.
Þar segir Guðmundur Karl Jónsson, forstöðumaður Hlíðarfjalls, að tugir milljóna hafi tapast eða um helming áætlaðra tekna. Hann segir tímabilin í raun vera tvö, annars vegar vetrarfríið og hins vegar páskarnir.
„Handritið var skrifað í skýin, vorum að klára lyftuna, sjaldan verið jafn mikill og góður snjór, flott veður um páska og svo hrundi bara spilaborgin," segir Guðmundur Karl í samtali við Rúv, það sé hins vegar ekkert annað í stöðunni en að líta björtum augum til næsta veturs og þá verði ný skíðalyfta komin í gagnið.
Tveir erlendir sérfræðingar sem áttu að aðstoða við lokavinnuna sneru heim vegna kórónuveirufaraldsins, það séu því tvær til þrjá vikur eftir af vinnu sem verði kláruð í sumar.