Þjónustumiðstöð fyrir þolendur ofbeldis

Fulltrúar þeirra sem standa að þjónustumiðstöðinni fyrir framan Gamla spítalann. Mynd/Akureyri.is
Fulltrúar þeirra sem standa að þjónustumiðstöðinni fyrir framan Gamla spítalann. Mynd/Akureyri.is

Þjónustumiðstöð fyrir þolendur ofbeldis á Norðurlandi var formlega opnuð á dögunum að Aðalstræti 14 á Akureyri í húsinu sem kallað hefur verið Gamli spítali. Verkefnið er að hluta til byggt á bandarískri fyrirmynd þar sem meginmarkmiðið er að brotaþolar fái á einum stað þá þjónustu sem á þarf að halda í kjölfar ofbeldis.

Um er að ræða samhæfða þjónustu og ráðgjöf fyrir fullorðna einstaklinga sem beittir hafa verið ofbeldi, s.s. kynferðisofbeldi, ofbeldi í nánum samböndum eða eru brotaþolar í mansalsmálum og/eða vændi. Veitt er fræðsla og umfjöllun um eðli og afleiðingar ofbeldis, auk námskeiða um birtingamyndir ofbeldis og afleiðingar þess, auk þess að gefa skýr skilaboð um að ofbeldi verði ekki liðið.

Frá því á haustmánuðum 2017 hefur embætti Lögreglustjórans á Norðurlandi eystra unnið að því að koma á fót þjónustumiðstöð fyrir þolendur ofbeldis á Norðurlandi, en að verkefninu koma einnig Akureyrarbær, Háskólinn á Akureyri, Aflið, Heilbrigðisstofnun Norðurlands og Sjúkrahúsið á Akureyri. Þá koma landssamtökin Samtök um Kvennaathvarf, Kvennaráðgjöfin og Mannréttindaskrifstofa Íslands sem standa að rekstri Bjarkarhlíðar einnig að verkefninu.

Akureyrarbær leggur til húsnæðið og verður þjónustumiðstöðin í sama húsnæði og Aflið hefur starfsemi sína. Frá þessu er greint á vef Akureyrarbæjar.

Nýjast