Tæpar 11 milljónir til Listasafnsins

Frá opnun Sköpun bernskunnar 2020.
Frá opnun Sköpun bernskunnar 2020.

Listasafnið á Akureyri hlaut á dögunum veglega styrki úr árlegri úthlutun Safnaráðs til viðurkenndra safna. Í fyrsta sinn var veittur Öndvegisstyrkur til allt að þriggja ára og hlaut Listasafnið 6,3 milljóna króna styrk fyrir hina árlegu sýningu Sköpun bernskunnar fyrir árin 2020-2022.

Sjötta sýningin undir þessu heiti var opnuð 7. mars síðastliðinn. Hún er m.a. sett upp sem liður í safnfræðslu Listasafnsins með þeim tilgangi að örva skapandi starf barna á aldrinum fimm til sextán ára. Listasafnið hlaut einnig 2,4 milljóna króna styrk úr Safnaráði fyrir þremur einkasýningum listamannanna Brynju Baldursdóttur, Heimis Björgúlfssonar og Jónu Hlífar Halldórsdóttur, sem allar verða opnaðar 16. maí næstkomandi.

Að síðustu hlaut safnið 2,1 milljóna styrk fyrir yfirlitssýningu á verkum Þorvaldar Þorsteinssonar, Lengi skal manninn reyna, sem verður opnuð á Akureyrarvöku þann 29. ágúst. Sýningin er unnin í samvinnu við Hafnarborg og þar verður hún sett upp 2021. Sýningarstjórar eru Guðrún Pálína Guðmundsdóttir og Ágústa Kristófersdóttir. Greint er frá þessu á vef Akureyrarbæjar og þar segir að þessir veglegu styrkir efli til muna starf Listasafnsins á Akureyri, þ.m.t. sýningahalds, fræðslustarfs og útgáfu.

Nýjast