13.nóvember - 20.nóvember - Tbl 46
Svörtustu spár vegna Covid-19 ekki gengið eftir
Allt lítur út fyrir að Covid-19 faraldurinn sé á undanhaldi og hefur það komið forstjóra Sjúkrahússins á Akureyri (SAk) ánægjulega á óvart hve fá tilfelli hafa komið upp á Norðurlandi. Þegar viðbúnaður SAk var undirbúinn var tekið mið af svörtustu spám og að um 10 til 12% tilfella sem þyrftu á sjúkrahúsvist að halda kæmu á Sjúkrahúsið á Akureyri.
„Sem betur fer hafa svörtustu spár ekki gengið eftir en svipað hlutfall Covid-19 smitaðra sjúklinga hefur komið á sjúkrahúsið og reiknað var með,“ skrifar Bjarni Jónasson forstjóri SAk í pistili á vef sjúkrahússins. Segir hann sjúkrahúsið geta farið að horfa til þess að færa starfsemina í þá átt sem var fyrir Covid.
„Þó verðum við að vera vel meðvituð um að upp geta komið staðbundin tilfelli sem geta kallað á ákveðin og jafnvel umfangsmikil viðbrögð. Mikilvægt er að sá lærdómur sem draga má af starfseminni á Covid-tímum nýtist okkur í endurbótum og þróun á þjónustu við sjúklinga og í innra starfi sjúkrahússins,“ skrifar Bjarni.
Í tengslum við aðgerðir ríkisstjórnarinnar um tímabundið fjárfestingarátak vegna áhrifa COVID-19 faraldursins hafa verið samþykktar aukafjárveitingar til sjúkrahússins. Til viðhalds og endurbóta fasteigna koma 120 milljónir kr. og til nýbygginga koma 80 milljónir kr. í hönnun á legurými. „Við fögnum þessu og nú þegar er hafinn undirbúningur þannig að þessir fjármunir nýtist sem best,“ skrifar Bjarni.