Super Break flýgur áfram til Akureyrar næsta vetur

Breskir ferðamenn koma til Akureyrar frá Bretlandi. Áfram verður flogið á milli næsta vetur.
Breskir ferðamenn koma til Akureyrar frá Bretlandi. Áfram verður flogið á milli næsta vetur.

Breska ferðaskrifstofan Super Break mun halda áfram að fljúga til Akureyrar næsta vetur. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Markaðsstofu Norðurlands. Breytingar verða gerðar á skipulaginu og er áætlað að fyrstu ferðirnar verði farnar í byrjun febrúar 2020 og að flogið verði hingað fram í apríl.

Chris Hagan, sem hefur yfirumsjón með verkefninu hjá Super Break, segir að 14 ferðir verði settar í sölu til að byrja með frá mikilvægustu héraðsflugvöllunum í Bretlandi. Vonir standa til þess að hægt verði að bæta fleiri ferðum við.

Alls voru 29 ferðir til Akureyrar í vetur á vegum Super Break og voru farþegarnir um 4.500.  

Nýjast