Bæjarráð styrkir björgunarsveitina í Hrísey

Hrísey.
Hrísey.

Bæjarráð Akureyrarbæjar samþykkti á síðasta fundi að styrkja Björgunarsveit Hríseyjar um 300.000 krónur vegna óeigingjarns starfs sveitarinnar ekki síst í erfiðum aðstæðum á nýliðnum vetri. Bæjarráð þakkar björgunarsveitinni fyrir ómetanlegt framlag í þágu sveitarfélagsins og íbúa þess.

Nýjast