Störf auglýst í Grímsey

Grímsey.
Grímsey.

Það er ekki oft sem sjást starfaauglýsingar fyrir Grímsey og því telst til tíðinda að þessa dagana sé verið að auglýsa laus tvö störf sem tengjast Grímsey. Á vef Akureyrarbær kemur fram að annars vegar er um að ræða fyrirtækið Arctic Trip í Grímsey sem leitar að sumarstarfsmanni frá byrjun júní til og með ágúst sumarið 2020.

Hins vegar auglýsir Þjóðskrá Íslands starf fulltrúa í Grímsey (og/eða Hrísey) sem skal annast verkefni við skráningu þinglýstra gagna í landeignaskrá. Um er að ræða tímabundið starf til ársloka 2021 með sveigjanlegu starfshlutfalli.

Nýjast