Starf Minjasafnsins á Akureyri styrkt
Minjasafnið á Akureyri hlýtur Öndvegisstyrk uppá níu milljónir króna til næstu þriggja ára vegna verkefnisins „Hvernig borðar maður fíl?" sem felst í auknum skráningum gripa og ljósmynda safnsins í gagnagrunninn sarpur.is. Safnið býr yfir meira en 3.000.000 ljósmynda og tæplega 36.000 gripum. Greint er frá þessu á vef Akureyrarbæjar.
Einnig var sex milljónum úthlutað til fjögurra ólíkra verkefna þar sem helmingur þeirrar upphæðar er ætlaður til uppsetningar á nýrri sýningu Jón Sveinsson undir yfirskriftinni „Ég heiti Jón en kallaðu mig Nonna". Önnur verkefni sem hlutu styrk voru safnfræðsla í Leikfangahúsinu á Akureyri sem Minjasafnið rekur í Friðbjarnarhúsi, útgáfu á bók með Íslandskortum Schulte en sýning á kortum þeim hefur staðið yfir í safninu undir heitinu „Land fyrir stafni" og samstarfsverkefni með Smámunasafninu í Eyjafjarðarsveit um skráningu á gripum þess.
„Ég er ákaflega stoltur“
Haraldur Þór Egilsson, safnstjóri Minjasafnsins, segir að þessi góða viðurkenning á starfi safnsins sé afar ánægjuleg. „Ég er ákaflega stoltur af þessum styrkjum sem eru viðurkenning á öflugu starfi starfsfólks Minjasafnsins á Akureyri. Öndvegisstyrkur til þriggja ára breytir miklu í skipulagningu starfsins hjá okkur og eykur aðgengi almennings að gagnasafni safnsins. Þá er ekki síður mikilvægt að geta gert nýja sýningu í Nonnahúsi,“ segir Haraldur.