13.nóvember - 20.nóvember - Tbl 46
Spáð hvítum jólum á Norðurlandi
Það kemur kannski lítið á óvart en spáð er hvítum jólum á Norðurlandi. Segir í hugleiðingum veðurfræðings á Veðurstofu Íslands að meira en nægur snjór er fyrir norðan til þess að hægt sé að fullyrða að þar verði hvít jól. Óvíst er hins vegar með hvít eða rauð jól sunnanlands. Reiknað er með litlum breytingum á veðrinu á næstunni. Norðaustan áttin og élin gefa lítið eftir fyrir norðan og yfirleitt þurrt á Suður- og Vesturlandi.
Þá verður vægt frost víða og spár gefa til kynna að heldur bæti í vind á fimmtudag. Úrkomubakki nær þá að koma inn á land suðaustan lands og mögulega eitthvað inn á Suðurland að auki, þó ekki fyrr en um kvöldið. Með þessu veðri hlýnar heldur.
Veðurhorfur á landinu næstu daga:
Norðaustanátt, víða 8-15 m/s. Él N- og A-lands, en lengst af bjartviðri S- og SV-til.
Frost 1 til 7 stig, en hiti um frostmark við SA-ströndina. Norðaustan 13-20 á morgun, hvassast SA- og NV-til. Áfram él um landið N- og A-vert, en þurrt á S- og V-landi. Heldur hlýnandi.
Á fimmtudag:
Norðaustan hvassviðri með snjókomu austantil, éljum um landið N-vert, annars úrkomulítið. Vægt frost, en frostlaust við S-ströndina.
Á föstudag og laugardag:
Ákveðin norðaustlæg átt og slydda eða snjókoma, einkum á A-verðu landinu, en áfram þurrt á SV-landi. Heldur hlýnandi.
Á sunnudag (vetrarsólstöður) og mánudag (Þorláksmessa):
Norðaustanátt með éljum eða slydduéljum N- og A-lands en bjart með köflum SV-til. Vægt frost, en víða frostlaust við ströndina.
Á þriðjudag (aðfangadagur jóla):
Útlit fyrir hæga breytilega átt. Skýjað með köflum, en þurrt að kalla. Frost víða 0 til 5 stig.