Sóun á vatni getur leitt til verðhækkanna

Rekstur Norðurorku gekk vel á árinu 2018. Ársvelta samstæðunnar var 3,8 milljarðar króna, hagnaður ársins 559 milljónir króna eftir skatta og eigið fé 12 milljarðar króna. Á aðalfundi félagsins í síðustu viku var ákveðið að greiða hluthöfum 15% arð af hlutafé eða 127 milljónir króna. Samstæðureikningur samanstendur af rekstri Norðurorku og dótturfélagsins Fallorku ehf. auk áhrifa frá hlutdeildarfélögunum Tengir hf. og Norak ehf. en rekstur þeirra allra gekk vel á árinu, segir í tilkynningu frá Norðurorku. Rekstur samstæðunnar var að mestu í takt við áætlanir. Í árslok var framkvæmt endurmat á veitukerfum og fasteignum móðurfélagsins. Niðurstaða endurmatsins var að eignir hækkuðu um 3,5 milljarða króna og eigið fé um rúma 3 milljarða króna. Veltufé frá rekstri var 1,2 milljarðar króna og handbært fé í árslok 665 milljónir króna.

Ný virkjun í Glerár og vatn beislað úr Vaðlaheiðargöngum

Á árinu lauk dótturfélagið Fallorka við byggingu nýrrar 3,3 MW virkjunar í Glerá sem gangsett var sumarið 2018. Þá lauk borun viðbótarholu á Arnarnesi sem og fyrsta hluta nýrrar Hjalteyrarlagnar. Framkvæmdir við byggingu hreinsistöðvar fráveitu við Sandgerðisbót eru í ferli og eru áætluð verklok sumarið 2020. Á árinu var beislað kalt og heitt vatn úr Vaðlaheiðagöngum en hönnun á framhaldinu er ólokið, þ.e. að nýta vatnið og tengja við Vatnsveitu Svalbarðstrandar og Akureyrar.

Stór og fjárfrek komandi verkefni

Verkefni næstu ára eru stór og fjárfrek, einkum í fráveitu og hitaveitu. Á árinu 2019 verður farið í annan áfanga Hjalteyrarlagnar frá Hjalteyri að Hörgárósi sem og lögn innan Akureyrar frá Glerárgötu upp Þórunnarstræti að Þingvallastræti. Áætlaður heildarkostnaður verkefnisins er um 2,5 milljarðar. „Þrátt fyrir að stór og mikil verkefni bíði í framtíðinni er það von okkar að verðskrár fyrirtækisins verði til lengri tíma litið með þeim hagstæðustu þegar horft er til fyrirtækja í sambærilegum rekstri. Sem samfélagi og einstaklingum er okkur ætíð hollt að muna að auðlindir okkar í heitu og köldu vatni eru ekki óþrjótandi. Mikið fjármagn þarf til að afla og vinna nýjar auðlindir og til uppbyggingar á kerfum til að auka flutningsgetu þeirra,“ segir í tilkynningu.

Fólk varist að sóa vatni

Vakin er athygli á því að sóun á heitu vatni og neysluvatni auki og hraði fjárfestingaþörf í innviðum sem aftur kallar á hækkanir á verðskrá félagsins. „Því er mikilvægt að halda til haga þeim tækifærum sem felast í því að fara vel með og forðast sóun á auðlindunum,“ segir í tilkynningu. Í stjórn Norðurorku voru kjörin Eva Hrund Einarsdóttir, Friðbjörg Jóhanna Sigurjónsdóttir, Geir Kristinn Aðalsteinsson, Hlynur Jóhannsson og Ingibjörg Ólöf Isaksen. Í varastjórn voru kjörin, Gunnfríður Hreiðarsdóttir, Hannes Karlsson, Hilda Jana Gísladóttir, Víðir Benediktsson og Þórhallur Jónsson. Eigendur félagsins eru sex sveitarfélög, Þingeyjarsveit, Grýtubakkahreppur, Svalbarðsstrandarhreppur, Eyjafjarðarsveit, Akureyrarbær og Hörgársveit.

Nýjast