13.nóvember - 20.nóvember - Tbl 46
Söfnin tengd betur saman og leiðin skýrari
Unnið hefur verið að því að færa safngripi í eigu Iðnaðarsafnsins á Akureyri að gönguleiðinni sem liggur frá Skautahöllinni og suður að söfnunum tveimur við Krókeyri, Iðnaðarsafninu og Mótorhjólasafninu. Markmiðið er að marka betur safnaleiðina sem liggur frá söfnunum í Innbænum og suður eftir.
Greint er frá þessu á vef Akureyrarbæ og sagt að þetta sé liður í því að tengja betur saman öll söfnin á þessu svæði, sem eru Leikfangasafnið, Nonnahús, Minjasafnið, Mótorhjólasafnið og Iðnaðarsafnið. Síðan er ætlunin að finna leið til þess að tengja Flugsafnið betur inn á þessa gönguleið.
Þeir gripir sem fluttir voru á svæðið austan við Skautahöllina eru risastór tromla frá Sútunarverksmiðjunni á Gleráreyrum, áburðardreifari sem nú er blómum prýddur og loks kranabíll frá Möl og sandi.