Snjóframleiðsla hafin í Hlíðarfjalli

Snjóframleiðsla í Hlíðarfjalli ofan Akureyrar hófst í gær og stefnt er að opnun skíðasvæðisins þann 13. Desember. Frá þessu er greint á Facebook-síðu Hlíðarfjalls í morgun.

„Nú eru loksins aðstæður til snjóframleiðslu og byssurnar búnar að ganga í sólarhring. Veðurspáin gefur von um snjókomu þegar líður á vikuna og við stefnum enn á að opna kringum 13. desember,“ segir í færslunni.  

Nýjast