Skoða fýsileika orkuskipta í Grímsey

Grímsey.
Grímsey.

Á fundi Byggðastofnunar og framkvæmdastjóra og formanna landshlutasamtaka sveitarfélaga fyrr í sumar voru undirritaðir samningar um styrki til sex landshlutasamtaka vegna sjö verkefna. Styrkirnir eru veittir á grundvelli stefnumótandi byggðaáætlunar fyrir árin 2018-2024. Alls voru 71,5 milljónum króna úthlutað fyrir árið 2019 og bárust 19 umsóknir um styrki að fjárhæð rúmar 278 milljónir kr.

Á fundinum var samþykkt að Eyþing hljóti 5,2 milljóna króna styrk til að skoða fýsileika orkuskipta fyrir Grímsey. Markmiðið er að hætta brennslu jarðefnaeldneytis í Grímsey, framleiða rafmagn og hita með lífdísli, vind- og sólarorku. Markmiðið með framlögum til sértækra verkefna sóknaráætlanasvæða er að færa heimamönnum aukna ábyrgð á ráðstöfun fjármuna og tengja sóknaráætlanir landshluta við byggðaáætlun.

Lögð er áhersla á að styrkja svæði þar sem er langvarandi fólksfækkun, atvinnuleysi og einhæft atvinnulíf.

Nýjast