20. nóvember - 27. nóvember - Tbl 47
Sigurjón Þórðarsson skipar fyrsta sæti á lista Flokks fólksins í Norðausturkjördæmi
Sigurjón Þórðarsson varaþingmaður Flokks fólksins í Norðvesturkjördæmi mun leiða framboðslista flokksins í Norðausturkjördæmi í komandi alþingiskosningum. En eins og fram hefur komið hlaut Jakob Frímann Magnússon sem leiddi flokkinn i þessu kjördæmi ekki náð fyrir augum uppstillingarnefndar.
Sigurjón Þórðarsson sat á þingi fyrir Frjálslynda í Norðvesturkjördæmi 2003-2007 en eins og áður sagði verið varaþingmaður fyrir Flokk fólksins í sama kjördæmi þetta kjörtímabil sem senn lýkur.