SFF - Samtök fyrirtækja í fjármálaþjónustu NÝ TEGUND SVIKA

Samtök fyrirtækja í fjármálaþjónustu
Samtök fyrirtækja í fjármálaþjónustu

Það virðist gilda það sama um varnaðarorð og góða vísu. Verður aldrei of oft kveðin. 

Glæpahringir sem herja á fólk til að komast inn í heimabanka verða sífellt tæknilegri og aðferðir þeirra trúverðuglegri.  

Borið hefur á að svikarar hringi í fólk og hafi af þeim fé með ýmiss konar blekkingum. Það nýjasta er að hringt er úr, að því virðist, íslenskum númerum en svikararnir eru þó enskumælandi. Tilboð þeirra eru oft of góð til að vera sönn, og þá er það oft málið, þetta eru svik. 

Dæmi er um að þeir bjóði upp á fjárfestingatækifæri í rafmynt, eða tilkynna að viðkomandi eigi eignir í rafmynt. Þá er fólki boðið að fá greitt fyrir að vera milliliðir í fjárfestingum í rafmynt. 

Í einhverjum tilvikum hafa svikarnir fengið fólk til að hlaða niður forritinu AnyDesk á tækin sín. Þannig er verið að veita þeim aðgang að símtækinu. Þá hefur fólk verið narrað til að gefa upp leyninúmer rafrænna skilríkja og komast þannig inn á heimabanka og geta tæmt reikninga og misnotað kreditkort. Svikarar hafa einnig notað greiðslukortaupplýsingar til að kaupa rafmynt hjá Bintense. Með þessu eru fjármunir tapaðir og fólk situr uppi með sárt ennið. 

Hér eru nokkur varnaðarorð sem eiga við nú sem endranær: 

  • Aldrei gefa upp lykilorð inn á rafræn skilríki né staðfesta eitthvað nema vera þess fullviss um hvað er verið að samþykkja. 
  • Aldrei samþykkja innskráningar eða aðgerðir í netbanka/appi s.s. millifærslur og kortafærslur nema vera þess fullviss að þú sért raunverulega að framkvæma þessar aðgerðir. 
  • Aldrei samþykkja að hlaða niður forritum eða fara inn á síður sem þið þekkið ekki. Það getur verið að þú sért að veita utanaðkomandi svikara fullan aðgang að símanum þínum. 
  • Aldrei gefa upp leyniorð eða kortaupplýsingar. 
  • Aldrei samþykkja að verða milliliðir í einhverjum fjármálagerningum sem þið þekkið ekki, jafnvel gegn greiðslu. 
  • Aldrei falla fyrir gylliboðum sem eru einfaldlega of góð til að vera sönn. Það eru allar líkur á því að það séu svik. 
  • Ef þú færð símtöl sem eru tortryggileg, slíttu því hið snarasta. Heiðarleg tortryggni getur borgað sig. Svikarar geta verið afar sannfærandi. 
  • Hafðu strax samband við bankann þinn og lögreglu ef þú telur að þú hafir orðið fyrir svikum.

Nýjast