Sameinar tónlistarstefnur í eitt verk
Þann 1. desember verður flutt glæný fagnaðarkantata „Út úr kofunum“ í Menningarhúsinu Hofi á Akureyri þar sem kynslóðir og tónlistarstefnur mætast og fagna saman fullveldinu, „með norðlenskum ofurkröftum“. Höfundur verksins er Michael Jón Clarke en flytjendur eru Stefán Jakobsson, Þórhildur Örvarsdóttir, Gísli Rúnar Viðarsson, Hymnodia, Eyþór Ingi Jónsson, Sinfóníuhljómsveit Norðurlands, ungmennakórinn Æskuraddir fullveldisins, Sigrún Magna Þórsteinsdóttir og ungir strengjaleikarar í Strengjasveit fullveldisins.
Höfundur texta er Sigurður Ingólfsson. „Verkið er ljóðræn útfærsla á þeim breytingum sem verða hjá þjóðinni frá því hún byrjar að líta hugdjarfari en fyrr til framtíðar og losa af sér hlekki og „klakabönd“ fortíðar,“ segir Michael Jón Clarke. Þar sé rakin, án þess að um beina sagnfræði sé að ræða, vegferð og hugarfarsbreytingar á tiltölulega stuttu en gríðarlega mikilvægu og kraftmiklu tímabili í lífi þjóðar, frá fullveldis til lýðveldis.
Um popp/rokk/klassík að ræða
Michael Jón segir að verkið sé nokkurskonar popp/rokk/klassík. „Hugmyndin var að sameina allar tónlistarstefnur í eitt verk og þannig sameina þjóðina,“ segir Michael. Hann leggur áherslu á að verkið sé alls ekki þungt. „Það er heimikil gleði í þessu og ég verð klæddur í leðurbuxur á sviðinu,“ segir hann og hlær. Verkið hlaut meðal annars styrk frá Afmælisnefnd fullveldis Íslands og segir Michael Jón að þetta sé eitt af stærstu verkum fullveldisafmælisins.
„Þarna verða t.d. 50-60 ungmenni meðal flytjenda og tónlistin verður fyrir alla aldurshópa.“ Tónleikarnir verða sem fyrr segir á laugardaginn kemur þann 1. desember og hefjast klukkan 20.00.
Miðasala er á www.mak.is.