Réðst inn á fæðingardeild og hótaði ljósmæðrum
Héraðssaksóknari hefur ákært mann á þrítugsaldri fyrir að brjótast inn á fæðingardeild Sjúkrahússins á Akureyri í mars í fyrra, vopnaður sprautunál og haft í hótunum við ljósmæður sem voru á vakt á sjúkrahúsinu á meðan þær sinntu verðandi mæðrum með sótt. Atvikið var tekið alvarlega af sjúkrahúsinu og aðgangsstýring er nú orðin öflugri.
Frá þessu er greint í Fréttablaðinu í dag.
Segir í ákæru að maðurinn hafi brotið rúðu á vesturhlið sjúkrahússins og ruðst inn í húsið í heimildarleysi og unnið miklar skemmdir á innanstokksmunum. Einnig braut hann rúðu á vaktherbergi fæðingardeildarinnar og skemmdi þar tölvubúnað.
Á fæðingardeildinni hótaði hann að stinga ljósmæður með sprautunál sem hann hafði meðferðis og sagði sprautuna bera HIV-smit. Krafðist hann þess að ljósmæður létu honum í té morfín af lyfjabirgðum deildarinnar.
„Þetta atvik var litið alvarlegum augum hér á sjúkrahúsinu,“ segir Ingibjörg Hanna Jónsdóttir, forstöðuljósmóðir Sjúkrahússins á Akureyri, í samtali við Fréttablaðið. „Vinna var hafin við aðgangsstýringu að sjúkrahúsinu á þessum tíma og var þeirri vinnu flýtt í kjölfar þessa atviks. Er það gert til að tryggja öryggi bæði starfsmanna og skjólstæðinga sjúkrahússins.“
Sá ákærði var ekki í andlegu jafnvægi þegar hann framdi þennan verknað. Atvik sem þessi eru afar óalgeng á sjúkrahúsinu og var strax tekið á þessu máli þar sem breytingum var hrundið í framkvæmd.
„Sjúkrahúsið á að vera griðastaður þar sem öryggi fólks er tryggt,“ segir Ingibjörg Hanna. „Það má segja það mildi að enginn hafi beðið skaða af, hvorki skjólstæðingar fæðingardeildarinnar né starfsmenn.“
Málið er einnig litið alvarlegum augum af ákæruvaldinu og er maðurinn ákærður fyrir brot gegn valdstjórninni líkt og hann hafi ráðist á lögreglumann við embættisstörf. Starfsmenn sjúkrahúsa; hjúkrunarfræðingar, læknar og aðrir heilbrigðisstarfsmenn, njóta verndar líkt og lögreglumenn við störf, segir í frétt Fréttablaðsins um málið.